Innra mat á skólastarfi í Vogaskóla
Lögð er áhersla á að allir starfsstaðir skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar vinni markvisst innra mat sem er óaðskiljanlegur hluti af skóla- og frístundastarfi. Í því flest fagleg ígrundun og greining á gögnum til að meta gæði skólastarfs og hvort að tilætlaður árangur hafi náðst út frá fyrir fram ákveðnum viðmiðum.
Innra mat Vogaskóla
Hér er gerð grein fyrir innra mati Vogaskóla fyrir skólaárið 2025 – 2026. Sett er fram matsáætlun til ársins 2029 þar sem tiltekin eru viðfangsefni matsins, hvenær og með hvaða hætti þau eru metin. Fjallað er um helstu niðurstöður, bæði þær sem koma vel út og þær sem þarfnast umbóta. Á grunni þessara niðurstaðna er gerð umbótaáætlun.